KÆRIR KÚNNAR #3
Fyrsti kúnninn minn eftir nám í grafískri hönnun var KRAMHÚSIÐ. Það hefur verið eintóm gleði að vinna með Hafdísi Árnadóttur stofnanda Kramhússins og hennar aðstoðarkonum og kennurum. Kramhúsið er svo sannarlega gríðarlega áhrifamikið fyrirbæri í íslensku menningarlífi. Ég er æviráðinn - og er stoltur af því.